UM OKKUR

Við heitum Tinna og Óskar og stundum nám við Karlsruhe Tächnische Universität í Þýskalandi. Planið er að skrifa nokkur orð hérna á síðuna um lífið okkar í Karlsruhe.

Auglýsing

Heimilið

  • Staður: 76137 Karlsruhe
  • Heimilisfang: Schützenstrasse 40

ANNAÐ

Klukkan

ÞÝSKALAND

Heimkoma

Gjafótek

27. nóvember 2009 klukkan 16:47
Fór í apótekið í síðustu viku, kannski rangt að setja það með ákveðnum greini, því hér er apótek á hverju horni (ég er EKKI að ýkja). Tinna átti að taka járntöflur og vorum við búin að fá resept fyrir því hjá lækninum. Við brugðum okkur sem sagt inn og strákurinn fór eitthvað afsíðis og kom svo með 100 töflur (2 kassar) og spurði hvort það væri ekki í lagi. Ég bara, uuu jújú, hélt við ættum bara að geta keypt 50 stk, en þetta var svo sem alveg í lagi. Hann lét mig hafa kassana og bara já takk.....og bless. Ég bara uuuu en borga. Hann leit þá bara á mig og spurði, já áttu kannski að borga og fá þetta endurgreitt síðar. Ég náttúrulega vissi ekkert hvað ég átti að segja svo eftir svona nokkurra sek. þögn, sagði hann, já neinei taktu þetta bara, þú þarft ekkert að borga :) Maður þarf greinilega að fara þangað oftar :)

Annars fór ég og náði mér í heimilslækni í síðustu viku. Höfum sem betur fer ekkert þurft að garfast í því, fyrr en núna því ég átti að fá svínaflensusprautuna barninu til góða. Ég fór því í kynningartíma (hann vildi hitta mig og athuga hvort ég væri ekki hraustur) og hann sagði mér að þeir fengju 10 skammta á dag, svo ég gæti komið vikuna á eftir og fengið að fara á biðlista. Þegar ég var á leið út, kom kall hálf hlaupandi út úr einu herberginu og sagði: "Ég vil sko EKKERT láta sprauta mig" (sem var dálítið fyndið, því þú ferð bara á þennan biðlista ef þú skráir þig sjálfur). Klukkan var á þessum tímapunkti um 1730, og hjúkrunarkonan stóð þarna eftir með 10. sprautu dagsins og spurði því mig hvort ég vildi ekki bara fá hana, sem ég svo þáði. Næstu tveir dagar voru svo viðbjóður. Held mér hafi liðið verr en ef ég hefði bara fengið flensuna :) En nú líður mér betur :)

Annars var ég að klára síðasta verkefnið í skólanum fyrir jólin, svo nú eru bara 3 vikur eftir af fyrirlestrum. Ekki slæmt það, ekki einu sinni kominn desember :) Ókosturinn er á hinn bóginn sá að nú er ekkert nema biðin ein.....sem er ekki vinur okkar þessa dagana. Margir í kringum okkur (þeir sem eldri og vitrari eru) hafa verið að segja að maður eigi bara ekkert að vera að bíða......við höldum að það hljóti bara að vera liðin of mörg ár síðan það var í þessari stöðu, til að þeir muni hvað þetta er spennandi....svo við bíðum bara :)

Hér er búið að vera rok í nokkra daga, sem er mjög óvanalegt. Þess vegna liggja dagblöð og drasl út um allt á götunum (menn svo vanir að allt lauslegt bara liggi kjurrt). Á veðursíðum hafa þeir verið að tala um allt að 15 m/s og varað við vondu veðri :). Það var þó fínt veður í gær, þegar við Tinna kíktum á jólamarkaðinn á Marktplatz, sem opnaði í gær. Það er alveg magnað að sjá hvað þetta er stór hluti af lífi fólks, því þá mætir allt í einu fólk sem er vant að slá slagbrand fyrir hurðina um 18 og kaupir sér glühwein og langos og fer ekki heim fyrr en milli 22 og 23. Við skemmtum okkur þó konunglega.

Bestu kveðjur héðan,

Óskar og Tinna.
Óskar Arnórsson
5 athugasemdir

Hálfur búinn - hálfur eftir

15. nóvember 2009 klukkan 09:29
Vil byrja á því að afsaka bloggleysið, en það gerist voða lítið hjá okkur þessa dagana. Síðasta vika var reyndar troðin  af mataboðum og veislum eins og ég sagði frá síðast. Heppnaðist allt rosa vel.

Í fyrradag kláraðist foreldranámskeiðið og erum við því útskrifaðir foreldrar :). Við höldum að við komum til með að sakna föstudaganna með ólétta fólkinu, því í fyrsta lagi var þetta þrælfínn hópur, í öðru lagi gaman að hitta fólk í sömu stöðu og í þriðja lagi er fínt að hafa fastan punkt í hverri viku, því þá veit maður að enn ein vikan er liðin.

Í byrjun vikunnar fórum við í kynningu/skráningu á spítalann sem gekk vonum framar. Allt starfsfólk sem við hittum var hið almennilegasta svo ekkert tilefni er til að hafa áhyggjur af móttökum þar.

Í gær var svo hin árlega íslendingaganga í Karlsruhe. Þar voru mættir einir 23 Íslendingar, bæði fullorðnir og börn. Ganga átti um 10 km kringum fjall hjá Bad Herrenalb. Við ákváðum að það væri ekkert vit í að leggja í allt labbið, svo við löbbuðum af stað með hópnum og snérum svo við eftir u.þ.b. klukkustundar labb. Við fengum þess í stað góðan ís í Bad Herrenalb og Kebab þegar heim var komið. Á heildina litið mjög vel heppnað, veðrið mjög gott, rúm 15 stig og Tinna ekkert svo þreytt í gærkvöldi.

Við reynum svo að skrifa fljótt aftur, biðjum að heilsa,

Óskar og Tinna.
Óskar Arnórsson
2 athugasemdir

Nóvember

01. nóvember 2009 klukkan 17:47
Þá er kominn nýr mánuður.....enn og aftur, tíminn flýgur áfram. Þetta gæti bara orðið stóri mánuðurinn, ég held allavega í vonina og ég er viss um að hún Tinna mín gerir það jafnvel enn meira en ég :).

Nú er skólinn kominn á fullt (eða svo að segja), og maður mætir eitthvað í skólann næstum alla daga vikunnar. Þetta verður voða ljúf önn sýnist mér, sem hentar ótrúlega vel fyrir okkur.

Veðrið hérna er bara nokkuð gott, það tók smá kipp uppávið aftur eftir nokkura lægð um miðjan mánuðinn. Við tókum því lestina í gærmorgun til Ettlingen og röltum þar um og fengum okkur pulsu að hætti Þjóðverja. Við hittum svo vinkonu mömmu Tinnu þar, en þar var hún á ferðlagi og skelltum við okkur öll á kaffihús. Ótrúlegt að hitta á hana þar, því við höfum einu sinni komið þangað á meðan við höfum búið hér, en henni var bent á að þetta væri fallegur bær og ætlaði að koma þar við í einar 40 mín á leið sinni til Frankfurt.....maður ætti frekar að geta unnið í lottói :).

Í næstu viku er svo mikið plan. Á þriðjudaginn koma 3 Ítalir í heimsókn til okkar, en þau fá að bragða íslenskt lambakjöt og ætlum við að horfa á AC Mílan leikinn sem er það kvöldið. Á miðvikudaginn er Tinna svo með prjónakaffi, svo ætli maður láti ekki bara svefnherbergið duga það kvöldið :) (en maður fær nú að næla sér í góðar veitingar í staðinn :)).

Einu langar mig að segja frá (þetta eru kannski svona Had to be there moment, eeeen....) Á foreldranámskeiðinu á föstudaginn var ljósmóðirin að fara yfir hina ýmsu þætti eins og venjulega. Í eitt skiptið er hún að ræða um hvar mesti þrýstingur á hvert líffæri konunnar er í mismunandi fæðingarstöðum. Hún leggst svo á bakið og setur tærnar upp í loftið (svona eins og lítið barn) og byrjar að dangla þeim saman á meðan við eigum að velta fyrir okkur hvar mesti þrýstingurinn sé í þessari stöðu. Þá segir ein....."Er það á tærnar?" Vá hvað ég hélt að ég yrði ekki eldri. Svo stuttu seinna er hún að sýna okkur pöbbunum hvar á bakinu sé gott að ýta til að minnka verkina þegar stóri dagurinn rennur upp. Þegar hún kemur svo að þessari stelpu (já þeirri sömu) ýtir hún á þessa punkta og spyr hvort hún finni ekki fyrir þessu....."Jú ég finn alveg hvernig verkirnir minnka". Ljósmóðirin: "Uuuuu það eiga ekki að vera neinir verkir núna, þetta á að létta á verkjunum þegar að fæðingunni kemur". Stelpan: "Óóóóóóó nú skil ég". Kannski er maður ótrúlega leiðinlegur að gera svona grín að fólki, eeen hún les hvort sem er ekki bloggið okkar :) Ég vona bara að þið getið hlegið smá með okkur :)

Bestu kveðjur Óskar og Tinna.
Óskar Arnórsson
4 athugasemdir

60 dagar

20. október 2009 klukkan 17:21
Fyrir þá sem hafa áhyggjur að það sé langt í okkur, þá eru ekki nema 60 dagar þangað til við setjum fætur okkar á eyjuna okkar á nýjan leik. Ég setti niðurteljara á bloggið okkar og fyrst þegar ég setti hann upp hélt ég að tölvan væri að kynda í mér.

Vika er nú liðin síðan prófin kláruðust og hefur hún verið nýtt vel. Fyrstu dagarnir fóru í innkaup á þessum helstu barnavörum sem maður þarf. Á fimmtudaginn kom Katla til Þýskalands og þar sem Kaspar var í prófi náðum við í hana og ferðin því nýtt og komið við í IKEA. Helgin var svo tekin í að kaupa nokkrar jólagjafir til að geta sent heim aftur með Kötlu, sem vel að merkja var örugglega með svona 40 kg á sér þegar hún kom....þar ef áttum við svona 35 kg :). Hún fær því smá bunka frá okkur til að taka aftur með heim, því við sjáum fram á að vera með nóg af drasli þegar við förum heim um jólin. Annars var voða gaman að fá pakkann sem hún kom með, en hann innihélt mest megnis matvöru ásamt HDMI snúru sem Signý systir keypti fyrir okkur (hún kostar 11.000 kr hérna en 2.500 kr heim....hefur verðlag hækkað???? :) ), svo nú getum við horft á alla þætti og bíómyndir í sjónvarpinu sem er alveg frábært.

Katla og Kaspar komu annars í mat í gær og enduðum við á kaffihúsi niður á Marktplatz seinna um kvöldið. Gærdagurinn var annars fyrsti skóladagurinn á næst síðustu önninni minni (frábært að geta sagt það) en hann var nú ekki mjög erfiður....eini tíminn sem átti að vera féll niður svo nú er næsti tími bara á fimmtudaginn. Maður ætti náttúrulega ekki að segja frá þessu......

Á morgun er svo planið að fara kannski í sund og kaupa inn.....já dagarnir hérna eru einfaldir en góðir, kannski maður leggi aftur í útihlaup, það væri nú gott fyrir heilsuna.

Biðjum að heilsa öllum,

kv. Óskar og Tinna.
Óskar Arnórsson
4 athugasemdir

3 dagar enn

11. október 2009 klukkan 12:05
Nú eru ekki nema 3 dagar eftir í þessu langa prófastríði mínu, sem hefur staðið síðan 20 júlí. Held þetta sé með lengri prófatörnum sem sögur fara af. Ekki finnst mér þó að það gefi manni auka búst, þvert á móti er þetta einhvern veginn að draga úr manni :)

Héðan er annars allt gott að frétta. Veðrið aðeins farið að versna, komið smá haust. Ekki getum við þó kvartað því á sama tíma les maður um þök og bíla sem fjúka heima fyrir, hérna er verið að tala um undir 20°C og kannski rigning af og til.

Annar tími foreldranámskeiðsins fór fram í fyrradag og held ég að ég hafi staðið mig með prýði. Rúnar spurði hvort ég væri útskrifaður pabbi, en ef dæmt hefði verið út frá þessum tíma veit ég ekki alveg hvaða einkunn ég hefði fengið. Það var nefnilega slökunaræfing seinni hluta tímans og ég tók mig til og sofnaði bara :) Ég var reyndar ekki sá eini held ég, svo ég var nú ekkert með mikinn móral yfir því.

Í gær var gleðidagur í Þýskalandi, þar semi þeirra heittelskuðu fótboltahetjur tryggðu sér sæti á HM2010 í Suður-Afríku. Við lásum nú reyndar um daginn að þeir væru löngu búnir að bóka heilt hótel fyrir liðið sitt, og það þegar þeir áttu 3 leiki eftir, þar af leikinn gegn Rússum í Moskvuborg í gær, sem þurfti að vinnast svo seðillinn væri tryggður. Það fór þó þannig að Klose skaut þeim áfram með einu af tveimur markskotum þeirra á meðan Adler þurfti að verja hverja stórsóknina á fætur annarri í marki Þjóðverja. Rússar hefðu getað fengið 2 víti í lokin svo okkur fannst skemmtilegt að þeir hefðu svo bent á í lokin að þetta hefði í raun aldrei verið í hættu :) Sitt sýnist hverjum, en við (allavegana ég) erum mjög sátt með þetta.

Jæja, ég ætla að halda áfram að lesa um Fluidtechnik og láta mig dreyma um miðvikudaginn, en þá lýkur þessu öllu og við taka skemmtilegri hlutir. Þar má nefna, út að borða á nýja Hooters staðinn í Karlsruhe :), Katla kemur frá Íslandi, IKEA innkaupaferð, læknisferð og margt fleira.

Kveðjum héðan

Óskar og Tinna.
Óskar Arnórsson
6 athugasemdir

Nýtt ár

03. október 2009 klukkan 12:26

Jæja er ekki kominn tími til að blogga smá??? Hérna kemur smá update á því sem gerst hefur. Við sem sagt erum búin að vera á Íslandi í rúmar 3 vikur, en mest allur tíminn fór nú bara í heimsóknir og vinnu, allavegana fyrir mitt leiti. Annars var náttúrulega rosa gaman að hitta alla vini og ættingja heima fyrir og var hver dagur fullnýttur. Fórum t.d. í giftingu og skírn hjá Sunnu og Örvari, heimsóknir til ömmu og afa beggja vegna, Miðás, Ártún, Hvamm, Glitvelli, Ásland, Reynihvamm og margt fleira. Nú hlökkum við bara til að fara aftur heim um jólin, en þá verður maður örugglega þétt bókaður (ekki það, það verður örugglega ekki til að heilsa upp á mig :) ).

Þegar út var komið biðu mín 3 próf og það fyrsta strax 4 dögum eftir heimkomu. Í bjartsýni minni tók ég lærdómsdótið með, en það gerði bara það að verkum að ég dröslaði möppu af gögnum fram og til baka, án þess að opna hana. Ég tók mig svo til og náði mér í flensu daginn eftir heimkomu og fór því lærdómurinn aðeins út um gluggann. Prófið var svo í gær og gekk það bara furðuvel, miðað við undirbúningstíma og getu.

Í gær byrjuðum við svo á foreldranámskeiði og gátum við "ráðið" okkur eitt stk. ljósmóður í leiðinni, en hún kemur til með að heimsækja okkur þegar við förum heim af spítalnum. Fínt að koma svona málum á hreint strax.

Í dag er á dagsskrá að koma sér af stað í að læra fyrir næsta próf.....gengur svona líka svaaaka vel....noooot (tileinkað Signýju). Annars ætlum við að fara á meistaradeildarleik á morgun í handboltanum að sjá Rhein Neckar Löwen taka á móti MKB Veszprém, vonandi standa Íslendingarnir sig vel, en þeim hefur fjölgað um 200% síðan í fyrra.

Við kveðjum að sinni og verðum nú duglegri að skrifa og setja myndir því nú er búið að komu öllu í samt horf á nýju tölvunni okkar,

kv. Óskar.

Óskar Arnórsson
3 athugasemdir

Staðfesting

04. september 2009 klukkan 13:36
Jæja, þá er það staðfest, kennarinn ákvað að hálf kollvarpa prófinu og það hefði ekki verið hægt að bera þetta saman við öll hin 6 sem við fengum. Þá er það bara ljósi punkturinn, en hann er sá að ég fer til Íslands á morgun. Ég er þó búinn að standa í þó nokkru stússi það sem af er degi, en núna er það frí.

Dagsskrá kvöldsins er ekki erfið, en spennandi :) Þar má helst nefna: Fótbolti, Tennis, Núdelschinken, Ís, Fótbolti aftur, meiri Tennis, Spurningaþáttur Gunthers og Gullmót í frjálsum. Spurning hvort maður nái að pakka einhverju líka :)

Annars var mér nú afhentur poki í gær, þegar Tinna var búin að pakka og mér sagt að ég mætti/ætti að koma með þetta með mér líka. Það voru ekki nema 6-7 kg af fötum :) Við komum því þó niður í 3-4 kg þegar uppi var staðið. Gaman að geta skotið svona á stelpuna sína, þegar hún getur ekki einu sinni mótmælt :):) Sniðugur er ég :)

Hlakka til að sjá alla á Íslandi,

Óskar
Óskar Arnórsson
2 athugasemdir

Einn

03. september 2009 klukkan 22:00
Jæja, þá er ég orðinn einn og yfirgefinn. Skutlaði Tinnu til Stuttgart áðan og nú er ég einn. Einn er minna en tveir svo það má því leiða út í ein-manna. Kannski passar það betur við þegar maður er karlkyns, eða kannski er þetta bara Manna, svona í merkingunni Menn. Kannski er það útaf prófinu í fyrramálið. 

Mathematische Methoden der Strömungsmechanik liggur fyrir. 4 dæmi, hvert 25% og búið að gefa upp úr hverju verður spurt.....það gerist svo aldrei, svo manni stendur ekki alveg á sama. Kennurum er það ótrúlega tamt að gera einmitt öðruvísi próf þegar maður fer í það. Þannig er að ég hef 6 gömul próf og þau eru ÖLL eins.....hverjar eru svo líkur á að þetta verði það líka? Þar sem það er ekki hluti af námsefninu að reikna líkindi, þá veit ég það ekki, en ætli það nálgist ekki bara 0% líkur. Leiðréttið mig ef einhver veit betur :)

Síðan er það bara Ísland á laugardaginn, svo ég verð örugglega í ótrúlega góðu skapi á morgun, fyrir þá sem vilja kíkja í heimsókn. Ef ekki, þá verð ég bara í góðu skapi sjálfur, aleinn eða jafnvel ein-manna.

Með einni kveðju,

Óskar 
Óskar Arnórsson
Engin athugasemd

Vel nýtt hlýtt frí

21. ágúst 2009 klukkan 18:49

Í gær var heitasti dagur sumarsins, hitinn fór víst í 38 stig skv. mælingum yfirvalda, en maður hafði það nú alveg á tilfinningunni að hann væri eitthvað hærri á svölunum okkar :). Við tókum því ekta letidag, fórum í sund og gufu, keyptum okkur ís í gæða ísbúðinni okkar og ég sleppti því að fara út að hlaupa.

Annars hefur fríið verið nýtt frekar vel. Það hefur svo sem ekki skemmt fyrir að hafa haft Heimsmeistaramótið í frjálsum í gangi á meðan. Fyrir þá sem ekki vita þá er það haldið í Berlín þetta skiptið svo umfjöllun hérna er mikil og góð. Í fyrradag fengum við svo nokkra Íslendinga í grill-heimsókn, en þar sem garðurinn hentar vel fyrir eitthvað um 10 manns, þá mættu allir "ungu" Íslendingarnir og heppnaðist kvöldið með besta móti.

Þar sem Tinna fer ekki í skólann í haust kemur hún ekki til með að kaupa sér skólalestarkortið góða, og þessu mundum við eftir þegar fríið var að hefjast. Við tókum því tvo daga frá og nýttum okkur ferðafrelsið og fórum í lestarferðir. Í síðustu viku fórum við í tvo bæi, annarsvegar Bad Herrenalb sem reyndist hinn fínasti bær. Hann er víst þekktur fyrir að vera svona kúr/spa bær og voru fullt af litlum skemmtilegum búðum sem við gátum gluggað í. Hinsvegar var það Ittersbach en hann reyndist aftur á móti hinn allra leiðinlegasti bær og það gekk svo langt að ég fór að velta því fyrir mér afhverju það væri yfirleitt verið að leggja lestarteina þangað, enginn miðbær, ekkert fólk.....ekkert. Þess má geta að þessir bæir eru báðir í Svartaskógi, svona næstum beint suður af okkur.

Í dag fórum við svo í aðra átt og fórum til austurs, fyrst til Pforzheim og þaðan til Bad Wildbad, en hann liggur líka í Svartaskógi (já þetta er enginn Hallormsstaðaskógur....maður gæti keyrt þarna um í marga daga án þess að lenda á sama veginum). Þessi bær var líka svona eins konar heilsubær, en þarna var þó mun meira af eldra fólki og setti það skemmtilegan svip á bæinn. Eftir ísskál og kaffibolla (hmmm hvort okkar fékk sér nú hvort :)) tókum við svo lestina til baka og vorum við mjög sátt með þennan versta dag hvað varðaði veður, ekki nema smá sól og 24 stig, en þó skárra en spáin sagði......kuldi og rigning.

Við tókum alveg nokkrar myndir en þar sem við lentum í því að tölvan mín bilaði í síðustu viku, höfum við ekki nennt að setja þær á netið, þar sem það var alltaf gert í gegnum hana. Það eru nú ekki nema tvær vikur í heimkomu og þegar út verður komið aftur, verður búið að kippa þessu í lag, ég lofa :).

Að lokum langar mig að segja frá því að ég fór að hitta svo kallaða Hauptprüfungskommision á miðvikudaginn, en þar þurfti ég að fá samþykki fyrir því að fá að velja mér valfagið mitt....jább samþykki til að VELJA....VALFAG. En þessi hópur ágætra manna tekur á móti fólki í þessum erindagjörðum heila klukkustund í mánuði....ekki mikið að gera á þeim bænum. Þeir voru sem sagt með opið frá 10.30 til 11.30 og vorum við mætt (héldum við) snemma eða um 9.50. Biðu ekki nema svona 10 á undan okkur og þegar loksins var opnað 10.35 (já bjánarnir mættu svo of seint) voru örugglega um 20-30 manns fyrir aftan okkur. Ég fór svo inn, sagði þeim að ég vildi velja þetta, þeir sögðu að ég ætti eiginlega að fylla út þar til gert blað (sem er ekki til fyrir Mastersnema ennþá) svo þeir sögðu bara að þetta væri í góðu lagi....maður mætti hvort sem er velja nánast hvað sem er, og stimpluðu blaðið mitt. Já það má aldeilis flækja málin. 

Held ég segi rétt sem snöggvast frá stórri lífreynslu sem ég lenti í þegar ég fór í prófið mitt þann 10. ágúst. Þetta var sem sagt skriflegt próf, á þýsku, bara með skriflegum spurningum, þ.e. engin reiknisdæmi. Aldrei á ævinni held ég að ég hafi verið jafn lélegur í þýsku og skilað af mér jafn slökum setningum málfræðilega séð. En prófið var EKKI nema 30 bls. svo maður fékk vænt sjokk við afhendingu prófsins. Ég skrifaði og skrifaði og þegar ég hélt að þetta væri að verða búið......þá var ég á bls 8 :). Hef ekki fengið einkunn enn, en vonum bara það besta. Verður allra hluta vegna ekki hæsta einkunn sem ég hef fengið.

Nú hefst svo lestur að nýju hjá Tinnu á mándaginn, eða viku fyrir próf, en ætli ég smitist ekki eitthvað smá þegar liður á vikuna og fari svo á fullt í lok hennar. Segjum kannski nýjustu fréttir rétt áður en heim verður komið.

Með bestu kveðju,

Óskar og Tinna. 

Óskar Arnórsson
Engin athugasemd

28

09. ágúst 2009 klukkan 09:51

Halló allir lesendur.

Héðan er lítið að frétta, enda gerist ekkert í þessum prófalestri, svo ég ákvað að skrifa þá bara eitt skrýtið blogg.

28, já margt má tengja við þessa tölu, en hér koma nokkur dæmi frá mér:

1. Það eru 28 dagar í febrúar mánuði.
2. Eftir 28 daga verð ég kominn heim til Íslands.
3. Eftir 28 daga verð ég hálfnaður með prófin mín.
4. Darron Gibson spilar í treyju númer 28 fyrir Man Utd.
5. Kannski verðum við foreldrar þann 28. Nóvember?
6. Þegar ég verð 28, þá verð ég vonandi búinn að læra og fluttur heim :).
7. NBA úrslitakeppni er mest 28 leikir.
8. 28 er vinsæll leikur í Indlandi.
9. Prímþættir 28 eru tveir í öðru sinnum sjö.
10. Og síðast en EKKI síst.....það ERU 28 STIG hérna inni hjá okkur og það getur reynst ógjörningur að sofna á kvöldin.

Vonandi fer útihitinn aðeins að lækka hérna, svo hitinn inni lækki eitthvað líka :)

Með bestu kveðju frá Karlsruhe,

Óskar

Óskar Arnórsson
4 athugasemdir